Rapyd logo

Öryggismál PCI

PCI – DSS öryggisvottun

Valitor, fyrirtæki í eigu Rapyd hlaut alhliða PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun árið 2011, fyrst íslenskra fjármála- og greiðslukortafyrirtækja, sem er sérstaklega ætlað að vinna gegn þróun á kortasvikum. Alþjóðlegu greiðslukortafyrirtækin gera í dag þá kröfu að öll fyrirtæki, sem meðhöndla, vista, senda eða móttaka greiðslukortaupplýsingar, vinni í samræmi við kröfur þessa staðals.

Innleiðing PCI DSS öryggisstaðalsins hjá Valitor, fyrirtækis í eigu Rapyd, tekur til allrar starfsemi fyrirtækisins, færsluhirðingar jafnt sem útgáfu.

Upplýsingaöryggisstefna Valitor tekur mið af lögum og reglugerð um persónuvernd, tilskipun Evrópusambandsins um persónuvernd og viðkomandi öryggisstöðlum. Jafnframt er stefnan í fullu samræmi við reglur Persónuverndar um öryggi persónuupplýsinga og leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlits um rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila.