Það kemur villan „941 Kerfi svarar ekki“, hvernig er hægt að leysa það?
Ef um er að ræða gsm posa, þá er best að slökkva og kveikja aftur. Ef um er að ræða IP posa, þá er gott að endurræsa posa og router ef ekki dugar að endurræsa bara posa.
Hvernig geri ég Símgreiðslu?
Ingenico posi: Þú velur F1, flettir niður (F2) þar til þú sérð Símgreiðsla, velur græna takkann.
Hvernig geri ég Endurgreiðslu?
Ingenico posi: Þú velur F1, flettir niður (F2) þar til þú sérð Endurgreiðsla og velur græna takkann. Síðan slærðu inn lykilorð söluaðila, slærð inn upphæð og ýtir á græna takkann. Ef að kortið er ekki fyrir hendi skal slá inn kortanúmerið þegar „Lesið kort“ kemur á skjáinn. Athugið að ekki er hægt að gera endurgreiðslu á debet kort.
Posinn prentar ekki hvernig er hægt að leysa það?
Athugaðu hvort að posarúllan snúi rétt í tækinu ef rúllan snýr rétt, þá getur verið að verið röng tegund af rúllu sé í posanum. Gott er að klóra í pappírinn til að sjá hvort að það komi dökk rönd í pappírinn. Ef að það kemur dökk rönd, þá er réttur pappír í tækinu.
Hvar versla ég posarúllur og hvernig rúllur á að kaupa?
Posarúllur er hægt að fá í helstu bókabúðum, Rekstrarvörum og hjá Pappír í Hafnarfirði.
Posar notast við hitaprentun og þurfa rúllurnar því að vera svokallaðar „thermal“ rúllur.
Er Rapyd með þjónustuaðila á Norðurlandi?
Já, Ljósgjafinn á Akureyri er þjónustuaðili Rapyd á Norðurlandi og síminn þar er 460 7799.
Hver er hámarks upphæð á snertilausri færslu?
Hámarksupphæðin á snertilausri færslu með korti er 7.500 kr. Hægt er að greiða hærri upphæðir með símum og snjallúrum.
Hvað þarf að gera til að fá posa?
Ef að þú ert nýr söluaðili eða vilt fá posa á nýjan samning þá þarftu að sækja um samstarfssamning hjá Rapyd á www.rapyd.is. Ef að þú ert þegar með samstarfssamning við Rapyd og vilt fá viðbótar posa þá óskarðu eftir slíku á netinu. Alltaf hægt að senda póst á sala@valitor.is eða hringja á skrifstofutíma í 525 2000.
Get ég fengið tax free í posann minn?
Já, það er hægt. Þú verður að hafa samband við þitt tax free fyrirtæki og þeir leiðbeina þér áfram.