Innlestur bókhaldsgagna
Innlestur bókhaldsgagna frá þjónustuvefnum Sögu yfir í Navision og DK gerir notandanum kleift að sækja allar kortafærslur og uppgjör frá Rapyd fyrir þitt fyrirtæki. Með því að nota Innlestur bókhaldsgagna geturðu valið á milli að sjá debet eða kredit uppgjör auk annarra möguleika sem völ er á. Með því að nýta sér Innlestur bókhaldsgagna geturðu stýrt tengingunni með Navision og DK, stillt á fyrirfram skilgreinda bókhaldslykla og bókað strax í kjölfarið.
Mikill tímasparnaður er fólgin í því að nýta sér veftengingu bókhaldsgagna auk þæginda í starfi en Rapyd hefur látið forrita á móti bókhaldsforritunum Navision og DK.
Hvernig fæ ég Innlestur bókhaldsgagna?
Söluaðili þarf að vita hver þjónustuaðili bókhaldskerfisins er t.d. Advania, Origo, Rue Du Net eða DK. Því næst er óskað eftir vefþjónustutengingu við Rapyd ef hún er ekki til staðar. Rapyd úthlutar aðgangsupplýsingum, notandanafn og lykilorð. Að lokum er óskað eftir við þjónustuaðila að fá veftenginguna fyrir innlestur bókhaldsgagna uppsetta.
*Kanna þarf hjá hverjum þjónustuaðila fyrir sig hvort kostnaður fylgir uppsetningu. Enginn viðbótarkostnaður til Rapyd fylgir við notkun á Innlestri bókhaldsgagna.