Rapyd logo

Stelpur og tækni 2022

Stelpur og tækni 2022

Það var líf og fjör í höfuðstöðvum Valitor þegar um 25 stelpur úr 9. bekk úr Víkurskóla heimsóttu okkur sl. fimmtudag til að kynna sér starfsemi í tæknifyrirtæki. Valitor tekur þátt í samstarfsverkefni með Háskólanum í Reykjavík um kynningu á tæknistörfum fyrir stelpur í grunnskóla. Dagurinn er haldinn víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna. Hugmyndin með deginum er að kynna ýmsa möguleika í tækninámi sérstaklega fyrir stelpum í 9. bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða. Valitor er í hópi leiðandi fyrirtækja í tæknigeiranum sem taka þátt í „stelpur og tækni“ í ár.

Konur sem starfa hjá Valitor á sviði upplýsingatækni tóku á móti stelpunum og kynntu fyrir þeim hvernig við nýtum okkur upplýsingatæknina sem er kjarninn í starfsemi fyrirtækisins.

Við þökkum þessum skemmtilegu og áhugasömu stepum innilega fyrir komuna.

Myndin er birt með leyfi hlutaðeigandi og Víkurskóla.