Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Rapyd og Valitor. Samþykkið er mikilvægur áfangi varðandi kaup Rapyd á félaginu.
Rapyd er alþjóðlegt fjártæknifyrirtæki sem hóf starfsemi á Íslandi árið 2020. Rapyd styður við söluaðila, hugbúnaðarfyrirtæki, og greiðsluþjónustuaðila um allan heim í því að þróa og virkja fjártækni- og greiðslulausnir.
Rapyd hyggst halda áfram að byggja upp öfluga starfsemi hér á landi og fjárfesta enn frekar á Íslandi. Fyrirhugað er að á Íslandi verði miðstöð greiðslumiðlunar samstæðunnar fyrir Evrópu. Við sameininguna verður rík áhersla lögð á að samruninn verði hnökralaus og hafi ekki áhrif á þjónustu og öryggi viðskiptavina.
Næstu skref fela í sér að tryggja að skilyrðum kaupanna verði fullnægt svo að hinn eiginlegi samruni geti átt sér stað, en beðið er eftir formlegu samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.