Rapyd logo

Garðar Stefánsson nýr forstjóri Valitor, fyrirtækis í eigu Rapyd

Valitor, fyrirtæki í eigu Rapyd, tilkynnti í dag um ráðningu Garðars Stefánssonar sem nýs forstjóra fyrirtækisins. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að alþjóðlega fjártæknifyrirtækið Rapyd gekk formlega frá kaupum á Valitor af Arion banka. Garðar, sem er núverandi forstjóri Rapyd Europe og býr yfir yfrigripsmikilli þekkingu á greiðslulausnum, mun taka við af Herdísi Fjeldsted fráfarandi forstjóra frá og með deginum í dag líkt og kveður á um í kaupsamningi.

“Eftir að hafa leitt vegferð Rapyd á íslenska markaðnum undanfarin fjögur ár ásamt því að vera með víðtæka þekkingu á greiðslulausnum bæði á innlendum sem og erlendum mörkuðum er Garðar Stefánsson best til þess fallinn að leiða Valitor nú þegar fyrirtækið er formlega komið í eigu Rapyd, “ segir Arik Shtilman, forstjóri og meðstofnandi Rapyd. “Ísland er heimili Rapyd í Evrópu og ráðning Garðars sem forstjóra Valitor er í takti við vilja og áætlanir fyrirækisins að styrkja rekstur Evrópustarfseminnar hérlendis og halda áfram þeirri vegferð að þjónusta og auðvelda viðskiptavinum að færa sig inn á nýja alþjóðlega markaði.“

“Það er ánægjulegt að Garðar Stefánsson taki nú við keflinu sem forstjóri Valitor og ég hef fulla trú á því að framtíð fyrirtækisins, öflugt starfsfólk og viðskiptavinir eru í mjög góðum höndum” er haft eftir Herdísi Fjeldsted fráfarandi forstjóra. “Garðar og Rapyd hafa lagt mikla áherslu á að auka fjárfestingarnar á Íslandi með það að markmiði að þróa nýjar fjártæknilausnir á heimsmælikvarða. Ég hlakka því til að fylgjast með spennandi þróun fyrirtækisins undir merkjum Rapyd.“

“Ég er þakklátur og fullur tilhlökkunar yfir því að fá tækifæri til að leiða fyrirtækið í þessari spennandi vegferð nú þegar Valitor er formlega komið í eigu Rapyd” segir Garðar Stefánsson, nýr forstjóri Valitor. “Starfsfólk Valitor er mjög mikilvægt fyrir Rapyd og með því að sameina teymi þessara tveggja fyrirtækja getum við náð okkar sameiginlega markmiði: að hjálpa viðskiptavinum á Íslandi, og víðar, að þrífast á hvaða markaði sem er á hnettinum.“

Rapyd gekk formlega frá kaupunum á Valitor þann 1. júlí 2022.

Um Rapyd

Rapyd opnar fyrir alþjóðaviðskipti með öllum þeim greiðslulausnum sem reksturinn þarf á hvaða markaði sem er. Fjártæknilausnir okkar hjálpa fyrirtækjum allt frá Fortune 500s til metnaðarfullra sprotafyrirtækja að framkvæma greiðslur og taka á móti greiðslum frá viðskiptavinum – jafnt á heimamarkaði sem og alþjóðamarkaði.  Með skrifstofur um allan heim, þar á meðal Tel Aviv, Dubai, London, Íslandi, San Francisco, Miami og Singapore vitum við hvað þarf til þess að greiðslur yfir landamæri verði eins einfaldar og viðskipti á heimamarkaði. Fylgjast má með okkur á: Blog, Insta, LinkedIn, Twitter og  www.rapyd.net/is/.